Söluvara

Íslensk Nýorka býður til sölu ýmislegt efni sem tengist vetni og vetnisrannsóknum.

1. Ljósmyndir úr myndasafninu hér á vefnum. Þær eru til í hárri upplausn og miklum gæðum. Hver mynd kostar 15.000 IKr án VSK.

2. Hreyfimyndina "Vetni - hreint orkuferli" er nú hægt að skoða á Skólavefnum. Þetta er skemmtilegt og fræðandi margmiðlunarefni sem fjallar m.a. um framleiðslu vetnis og tengsl þess við vatn og orku. Hreyfimyndin er gagnvirk og var unnin í samvinnu við Gagarín. Handritið er eftir Ara Trausta Guðmundsson og ritstýra var María Maack. Hugmyndina átti samt Jón Björn Skúlason. Útskýrt er með íslensku tali (einnig hægt að velja um enskt tal) og sýnt á myndrænan hátt hvernig vetni er framleitt úr vatni með endurnýjanlegum orkugjafa, hvernig efnarafali vinnur, hvernig vetni er geymt og gerð grein fyrir efnafræðinni að baki tækninni. Skjáskot úr myndinni má sjá hér að neðan. Efnið hentar bæði almenningi og nemendum í skólum. Hreyfimyndin kostar 3000 IKr án VSK ef hún er keypt á CD diski. Diskurinn var sendur öllum grunnskólum í landinu í október 2003 og öllum framhaldsskólum árið 2005.  

Skoðið einnig leshefti um vetni: Orkuberinn hreini sem er undir útgefið efni. Skrifið tölvupóst á maria.maack@newenergy.is ef þið viljið kaupa efni sem eri til sölu og látið koma fram í tölvupóstinum fullt nafn og heimilisfang. Ef ætlunin er að kaupa ljósmynd þarf að koma fram skráarnafn hennar (sýnilegt fyrir ofan myndina í myndskoðaranum í myndasafninu). Fyrir hreyfimyndina þarf að taka fram hvort óskað er eftir íslensku útgáfunni (9Mb), ensku (9Mb) eða báðum (17Mb), sama verð fyrir allar. Athugið að til að geta móttekið ljósmyndir eða hreyfimyndina í tölvupósti þarf tölvupóstfangið þitt að hafa nægilega stórt geymslurými!




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15