
Íslensk NýOrka hefur boðið gestum fyrilestra um vetni og verkefni fyrirtækisins. Fyrirlestrunum fylgja umræðustundir þar sem fyrirspurnum er svarað og reynt er að svala forvitni gesta. Hópar sérfræðinga jafnt og framhaldsskólanema, kennara og eldri borgara hafa hlýtt á kynningar okkar. Jafnframt hefur verið tekið á móti skólahópum til að sýna vetnistæknina og ræða við starfsfólk á viðhaldsverkstæðum. ATHUGIÐ AÐ VAGNARNIR VERÐA EINUNGIS Í UMFERÐ ÚT ÁRIÐ 2006. Það kostar einn strætómiða að prófa þá.
Að jafnaði eru það fleiri erlendir gestir en Íslendingar sem leita eftir kynningu á vetnisverkefnum NýOrku. Við tökum á móti erlendum hópum af orkusérfræðingum jafnt og stúdentum eða framhaldsskólahópum. Erlendir hópar greiða fyrir þjónustuna. Fyrirlestrar eru dagsettir með góðum fyrirvara og eru haldnir að jafnaði í Tæknigarði þar sem prófessor Bragi Árnason og prófessor Þorsteinn Ingi Sigfússon halda erindi um orkumál í alþjóðlegu og íslensku samhengi og síðan koma tveir fulltrúar frá NýOrku. Þeir fjalla um vetnisvagnaverkefnið, rannsóknaniðurstöður, almennar viðtökur og reynslu af því að nota vetni sem orkubera. Hópum frá skólum er jafnframt boðið að skoða vetnisstöðina og búnað vetnisvagnanna ef áhugi er fyrir hendi og semst um tíma.
Nánari upplýsingar um fyrirlestra og námskeið er að finna á ensku útgáfu síðunnar.