
Stefna Íslenskrar NýOrku er að auðvelda og undirbúa notkun vetnis fyrir samgöngur á Íslandi. Reynt verður að gera tilraunir með að nota vetni sem orkubera fyrir allar samgöngur og fiskiflotann. Markið er sett á að Ísland verði vetnisvætt fyrir árið 2050. Stundum er stefna NýOrku túlkuð sem svo að verið sé að útiloka allar aðrar gerðir eldsneytis. En það er öðru nær. Gera þarf tilraunir með allar gerðir eldsneytis sem geta hentað á Íslandi en vetnið er viðfang fyrirtækisins. Samvinna við aðra sem leggja til nýtt eldsneyti einkum við að draga fram samanburð, kynningar á visthæfu eldsneyti og betri nýting orku og minni mengandi útblástur frá samgöngukerfinu er kappsmál NýOrku og væntanlega allra þeirra er vilja setja umhverfisvernd í öndvegi.
Fyrsta skrefið var að prófa strætisvagna sem knúnir eru með efnarafölum og nota vetni. Næsta skref er að tilraunakeyra minni bíla og að nota vetni um borð í bátum og skipum. Líklega mun taka lengstan tíma að innleiða vistvænt eldsneyti í skipaflotanum. Athugið að Íslensk NýOrka er ekki ríkisfyrirtæki og því getur verið misræmi á milli stefnu þess og síðan stefnu ríkisstjórnarinnar í sama máli. HIns vegar eiga orkufyrirtækin Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun stóran hlut í Íslenskri NýOrku.