ECTOS

Evrópusambandsverkefnið ECTOS (Ecological City TranspOrt System) stendur fyrir tilraunaakstur með vistvænum borgarsamgöngum. Íslenskri NýOrku var veittur rausnarlegur styrkur til að prófa vetnisvagna í almennri umferð í Reykjavik og fyrsta vetnisstöðin var reist til að vinna vetni úr vatni fyrir vagnana. Gagnasöfnun fór fram í vögnunum, á stöðinni og í þjóðfélaginu almennt á meðan tilrauninni stóð. Nú er hægt að nálgast allar skýrslur verkefnisins hér ! Þær eru allar á ensku, enda um alþjóðlegt verkefni að ræða. Verkefninu lauk í ágúst 2005 og tókst framúrskarandi vel. Fyrirtækið, starfmenn í samstarfsfyrirtækjunum og erlendir samstarfsaðilar lærðu mikið um búnaðinn og hvað má lagfæra til að reka vetniskerfi i samgöngum. Enn verður haldið áfram að keyra vagnana til ársloka 2006 innan annars verkefnisramma sem nefnist Hy-FLEET:CUTE.

Afstaða Íslendinga til Vetnis í Desember 2001 Skýrslan




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15