Vetnisbílar

Í Reykjavík eru nú 22 vetnisbílar flestir vetnisrafbílar sem nota rafla til að mynda rafmang úr vetni. Aðrir eru af gerðinni Toyota Prius. Þeir eru með vél eins og aðrir Príus-bílar en brenna vetni í stað bensíns og hafa búnað til að nýta eldsneytið betur en venjulegir bensinbílar.

Bílarnir sem Íslensk NýOrka hefur fengið til landsins eru í tilraunaakastri og er tilgangurinn sá að kanna úthald þeirra, bilanatíðni, nýtni og aðra þá þætti sem telja má til frumreynslu notenda af þeim gerðum vetnisbíla sem hafa fengist. Ford bílarnir sem og A class bílarnir frá Daimler komu notaðir higað til lands og er tilgangur bílaframleiðendanna með ´þessu sá að fá sem mesta og fjölbreyttasta notkun á farartækjunum svo að læra megi hvað megi betur fara í næstu kynslóðum tækninnar. Aclass bílarnir fóru aftur til Þýskalands á árinu 2009.

Príusarnir eru smíðaðir í Japan en síðan breytt á vegum fyrirtæksins Quantum í Kaliforníu. Hver bill kostar 130.000 US$. Bílarnir voru pantaðir með 6 mánaða fyrirvara og eftir breytingar voru þeir loks fluttir sjóleiðina til Íslands. Þeir eru með 2 ára ábyrgð frá framleiðanda og breytanda. Vetnistankurinn getur mest tekið 2,4 kg undir 350 bara þrýstingi í 3 hylkjum og getur ekið 160 km við bestu skilyrði. Notkun bílanna hefur farið fram innan flota Orkuveitu Reykjavíkur, hjá Landsvirkjun, Vistorku og hjá bílaleigu Herz. Starfsfólk notar þá í ýmsum erindum. Á næstu mánuðum gerir Íslensk NýOrka sér vonir um að fleiri rafbílar verði teknir í notkun hér á landi og verður vonandi hægt að halda til haga upplýsingum frá notendum því að nákvæm skráning gerir það auðveldara að fylgja eftir óskum um breytingar á hönnun. Hafi fólk áhuga á að taka slíka bíla í notkun og styðja við rannsóknirnar hafið þá samband við Jón Björn Skúlason.




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15