Vetnisstöðvar Íslenskrar NýOrku
Íslensk NýOrka hefur komið á fót tveimur vetnisstöðvum nú þegar. Sú stóra er framleiðslu, geymslu og áfyllingarstöð og stendur við Grjótháls. Hin er einungis áfyllingarstöð og stendur á Ægisgarði við Reykjavíkurhöfn.
Grjótháls
Vetnisstöðin sem stendur við Grjótháls á lóð Skeljungs sem liggur næst Vesturlandsvegi, vinnur vetni úr vatni, geymir það undir þrýstingi og þar er jafnframt áfyllingarbúnaður til að fylla á ökutæki og þrýstikúta. Stöðin var byggð og vígð í apríl 2003.
Vetnið er unnið úr fersku vatni