11. maí 2010 | 00:00

Annað árið í röð styrkir ferðaskrifstofan Ísafold við rannsóknir og tilraunir Íslenskrar NýOrku. Ísafold selur ferðir um Ísland með leiðsögn þar sem ferðamenn geta sjálfir ekið um hálendisvegi og sandstrandir. Draumur fyrirtækisins er að nýta íslenska orku á farartæki þannig að minni útblástur fylgi ferðum þeirra um landið. Á
heimasíðu Ísafoldar er nánar greint frá starfsemi þeirra en NýOrka þakkar kærlega fyrir stuðninginn, enda sækja ferðamenn mikið upplýsingar frá tilraunaakstri á vetni og rafgeymum.