14. júlí 2010 | 11:46
H2 farartæki – frábært í veiðitúrinn!
Fyrr í mánuðinum (Júlí 2010) fór framkvæmdarstjóri Íslenskrar NýOrku á 4x4 Ford Explorer vetnisjeppa í laxveiðitúr í Elliðaár í Reykjavík. Þessi túr sýndi hversu vel vetnistæknin hentar við fjölbreyttar aðstæður og stenst þær kröfur sem almenningur setur farartækjum. Með áframhaldandi þróun vetnistækninnar er búist við að stærð og drægi vetnis farartækja muni vera slíkur að jafnvel jeppaunnendur þurfi ekki að hafa áhyggjur.
"Upplifunin við það að fara í fiskveiði á útblásturslausum nýorkubíl var einstök. Ég er nokkuð viss að þetta var fyrsta skipti sem vetnisbíll er notaður í þessum tilgangi. Auðvitað skaðaði ekki að ég og konan mín veiddum tvo laxa í túrnum. Ég hlakka til að geta notað vetnisrafbíla í alla framtíðar notkun - og er ég fullviss að það verði innan fárra ára" sagði Jón Björn eftir ferðina.
