14. júlí 2010 | 15:19
Við leitum að átta fjölskyldum á höfuðborgarsvæðinu
til að taka þátt í rannsókn og leigja nýorkubíla (rafgeymabíl og vetnisrafbíl). Við viljum umsóknir frá 2-4 manna heimilum sem hafa áhuga á umhverfismálum. Ökumenn verða að hafa náð 22 ára aldri. Æskilegt er að hafa bílskúr til umráða, en aðgangur að rafmagnsinnstungu fyrir bílinn er nauðsynlegur. Tilgangurinn er að kynna þá gerð rafgeyma og vetnisrafbíla sem nú eru í sjónmáli á markaði en hver þátttakandi skuldbindur sig til að reyna báðar gerðirnar hvora í einn mánuð í senn.
Hvers vegna köllum við þetta rafbíla-tilraun? Jú báðar gerðir eru knúnar rafhreyflum, rafgeymabíllinn fær rafmagn frá geymi en vetnisrafbíllinn kemst lengra á hverri orkufyllingu því hann getur unnið rafmagn úr vetninu um borð. Báðar gerðir eru rafbílar.
Sjá nánar auglýsinguna hér