Skip to main content
[av_textblock size=“ font_color=“ color=“ av-medium-font-size=“ av-small-font-size=“ av-mini-font-size=“ av_uid=’av-jqrsbsd7′ admin_preview_bg=“]

Hydrogen Utilization and Green Energy verkefni hafið

Verkefni sem ber heitið Hydrogen Utilization and Green Energy project, eða HUGE, var formlega hleypt af stokkunum í Galway á Írlandi nú í byrjun júlí. HUGE er þriggja ára verkefni sem styrkt verður um €1,4 milljónir af Northern Periphery  and Arctic Programme 2014-2020.  Markmið verkefnisins er að styrkja orkuöryggi afskekktra byggða með því að þróa verkfæri sem gera þessum samfélögum kleift að meta tækifæri í vetnistengdum og endurnýjanlegum orkugjöfum á Norðurslóðum. Íslensk NýOrka mun taka þátt í vinnupökkum sem varða viðskiptalíkön um vetnisnýtingu og útbreiðslu þekkingar á vetni og tengdri tækni til hagsmunaaðila. Við hlökkum sannarlega til næstu þriggja ára með frábærum hópi sérfræðinga í endurnýjanlegri orku frá Bretlandi, Færeyjum, Finnlandi, Írlandi, Skotlandi og Noregi.

Á vefsíðu og Twitter reikningi HUGE verkefnisins má fylgjast með framgangi þess og nýjustu fréttum.
[/av_textblock]