Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi efndu í dag, 8. september, til fundar í Húsi atvinnulífsins undir yfirskriftinni „Orkuskipti á hafi – Raunsæi, vonir og væntingar“. Þar flutti Arnstein Eknes, frá norska ráðgjafarfyrirtækinu DNV, erindi um það sem fram undan er í orkunýtingu og orkuskiptum á hafi.