
Innleiðing losunarfríra trukka
Undanfarin ár hefur Íslensk Nýorka skoðað innleiðingu á losunarfríum trukkum á Íslandi. Í tvö ár hefur rík áhersla verið á að koma á ívilnunum fyrir losunarfría trukka. Félagið heimsótti fjölda trukkafyrirtækja og kaupendur trukkaþjónustu til að reyna að fá sem bestan skilning á þörfum. Að auki var unnið náið með Samtökum Verslunar og Þjónustu og Umhverfis- og Orkustofnun í að greina hvernig ívilnunum væri best fyrir komið ásamt fjölda funda með fulltrúm ráðuneyta.
Ljóst er að tímamót urðu um síðustu áramót þegar innleiddar voru ívilnanir fyrir stærri tæki á Íslandi og ljóst er að Ísland er leiðandi hvað varðar ívilnanir fyrir vistvæna stærri tæki. Stjórnvöld hafa því staðið sig afar vel. Nú er komið að markaðnum. Tekið skal fram að allir staðir sem eru nefndir í skýrlsunni eru ekki endanlegt staðarval – heldur bara viðmiðun sem notuð var í skýrslunni.
Eitt af því sem ítrekað hefur komið upp er að uppbygging innviða verði alltof dýr og flókin, hvort sem um er að ræða batterýstrukka eða vetnis. Íslensk Nýorka ákvað þá að fara í verkefni til að reyna að fá dýpri skilning í trukkahleðslur við þjóðveginn og er afraksturinn þessi skýrsla. Ekki eru endanleg svör í skýrslunni enda furðaði félagið sig á hversu fáir hefðu áhuga að styrkja slíkt verkefni. Að lokum fékkst styrkur frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar og RARIK lagði fram fé til viðbótar.
Niðurstöður eru jákvæðar, þ.e. að kostnaður við uppbygginguna og tæknilausnir eru ekki hindranir á veginum.
Vissulega kosta innviðirnir talsvert en ef þeir verða sæmilega nýttir þá er leiðin fær. Landnotkun, staðarval, skipulagsmál og tengingar við þjóðveginn er ekki skoðað í þessu verkefni en á meðan verkefnið var í vinnslu stórjókst áhugi á málinu og Vegagerðin er nú að vinna næsta fasa sem mun opna umræðu um næstu skref hvað varðar leikreglur um trukkahleðslustöðvar við þjóðveginn.
Rétt er þó að benda á að mikilvægt er að Orkusjóður styrki uppbyggingu slíkra innviða en mikilvægt er að styrkja þá sem hafa þegar tryggt allar nauðsynlegar forsendur til að geta byggt slíkar stöðvar. Þetta mun eflaust verða til skoðunar hjá orkusjóði á komandi mánuðum.
Sé nánari upplýsinga óskað má hafa samband –
Jón Björn Skúlason framkvæmdastjóri, 8636510 eða skulason@newenergy.is