Alls bárust 600 umsóknir í aðra umsóknarlotu European Energy Communities Facility. Umsóknarfrestur rann út 5. júlí. Sjóðurinn mun velja að minnsta kosti 71 styrkþega úr hópi umsækjenda.
Þegar báðar lotur eru teknar saman hafa sjóðnum borist tæplega 1.300 umsóknir um stuðning við 144 orkusamfélög í ESB-ríkjunum 27, á Íslandi, í Moldóvu, Norður-Makedóníu og Úkraínu. Viðbrögðin hafa farið langt fram úr væntingum aðstandenda verkefnisins og sýna að mikil eftirspurn er eftir fjármögnun sem er sérstaklega hönnuð fyrir fyrstu skref orkusamfélaga.

Hvað fá styrkþegar?
Valdir styrkþegar fá 45.000 evra styrk til að þróa viðskiptaáætlun sína. Auk þess fá þeir aðgang að fræðsluáætlun sem þeir fylgja á eigin hraða, sérstökum vefnámskeiðum og fjölbreyttum hagnýtum gögnum sem styrkja þekkingu þeirra og færni. Styrkþegar verða einnig hluti af vaxandi neti orkusamfélaga þar sem þeir geta skipst á reynslu, lært hver af öðrum og byggt upp gagnkvæman stuðning.
Árið 2028 munu um 140 orkusamfélög hafa þróað trausta viðskiptaáætlun, sem gefur þeim stefnumótandi grunn til að laða að fjárfesta, tryggja frekari fjármögnun og hrinda sjálfbærum orkuverkefnum í framkvæmd. Heildarfjárfesting sjóðsins nemur um 6,5 milljónum evra í formi 144 eingreiðslustyrkja upp á 45.000 evrur hver.
Tækifæri fyrir Ísland
Íslensk NýOrka er National Expert á Íslandi og veitir upplýsingar og leiðbeiningar um sjóðinn. Íslensk NýOrka hélt kynningarfundi um sjóðinn og eru þeir aðgengilegir á netinu fyrir alla sem vilja kynna sér verkefnið og möguleikana sem í því felast.
Ísland er eitt þeirra landa sem taka þátt í sjóðnum. Á Íslandi hafa orkusamfélög enn ekki fest sig í sessi, og því er þetta verkefni einstakt tækifæri fyrir samfélög, félög og hópa sem láta sig orkumál varða. Hér gefst færi á að leggja grunninn að fyrstu orkusamfélögum landsins með fjárhagslegum stuðningi, fræðslu og tengslaneti við sambærileg verkefni víðs vegar um Evrópu, jafnvel þótt hugmyndin sé enn á frumstigi.
Nánari upplýsingar má finna á energycommunitiesfacility.eu.