Íslensk Nýorka og Hafið unnu í víðtæku samráði við lykilaðila sem tengjast uppbyggingu innviða fyrir raftengingar skipa í höfnum að undirbúningi aðgerðaáætlunarinnar, sem kynnt var í desember 2018. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að staða raftenginga til skipa í höfnum er nokkuð góð hér á landi þegar litið er til lágspennutenginga en hins vegar er skortur á háspennutengingum sem nauðsynlegar eru stærri skipum. Tækni er ekki hindrun fyrir raftengingar til skipa en fjármögnun innviða í höfnum er lykilþáttur sem og hvatar til skipaeigenda vegna uppsetningar búnaðar. Í áætluninni eru lagðar til fimm lykilaðgerðir sem eru eftirfarandi:
Tryggt verði að allar hafnir bjóði raftengingar til smábáta og minni skipa, með rafmagnsnotkun á lágspennu, fyrir skip með aflþörf að 500 kW.
Uppsetning tíðnibreyta til að tengja skip á 60 Hz tíðni.
Háspennutengingar fyrir skip með aflþörf á bilinu 1-5 MW svo sem frystiskip, flutningaskip og minni skemmtiferðaskip.
Háspennutengingar fyrir skip með aflþörf yfir 5 MW.
Heitt vatn til kyndingar í skipum í höfn.
Þá eru til viðbótar tillögur um stuðningsaðgerðir stjórnvalda og möguleg frumkvæðisverkefni í tengslum við nýja Vestmannaeyjaferju, nýtt hafrannsóknarskip og háspennutengingu í Sundahöfn og á Seyðisfirði. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.