Skip to main content

Image result for h2ports

Höfnin í Valencia er ein sú fyrsta í heiminum til að innleiða vetnistækni í tæki sem notuð eru í starfsemi innan hafnarsvæðisins. Höfnin fékk styrk frá Evrópusambandinu til að vinna að verkefninu H2PORTS sem miðar að því að prófa vetnistækni í ýmsum tækjum og vinnuvélum en einnig að þróa hagvæma aðfangakeðju fyrir vetni í samvinnu við birgja, viðskiptavini og vetnisframleiðendur. Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi og niðurstöðum þessa verkefnis á komandi árum.

Sjá nánar í umfjöllun GreenPort og FCH Ju.