Skip to main content

Fimm íslensk fyrirtæki hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á vetnisknúnum MAN hTGX vöruflutningabílum.

Um er að ræða dráttarbíla af stærstu gerð, 44/49 tonn. Orka náttúrunnar (ON) framleiðir á Hellisheiði vetni til að knýja bílana og Blær Íslenska vetnisfélagið dreifir því. Með þessu sameinast framleiðandi og innflytjandi bílanna, viðskiptavinir og fyrirtækin sem framleiða og dreifa orkugjafanum um eitt stærsta orkuskiptaverkefni á Íslandi.

Unnið hefur verið að samningum um innflutning bílanna og viljayfirlýsingu um kaup á þeim undir verkstjórn Íslenskrar NýOrku í um 18 mánuði, en Íslensk NýOrka var stofnuð 1999 í tengslum við viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands um að stefna að nýtingu endurnýjanlegra orkubera til samgangna.

Skrifað var undir viljayfirlýsinguna um kaup á bifreiðum í Hellisheiðarvirkjun þar sem vetnisframleiðsla ON fer fram kl. 15:30 í dag. Kraftur er umboðsaðili MAN á Íslandi, en fyrirtækin sem kaupa fyrstu bílana eru BM Vallá, Colas, MS, Samskip,og Terra. Í tengslum við kaupin á bílunum byggir Blær nýja vetnisstöð sem veitt getur bæði vörubílum og fólksbílum þjónustu.

Kraftur hefur tryggt sér til afhendingar 20 bíla, til afhendingar á næsta og þarnæsta ári. Fyrstu bílarnir eru væntanlegir vorið 2025. Vonir standa til að fleiri fyrirtæki kjósi að taka í notkun losunarfría vörubíla af stærstu gerð. Á árinu 2025 eru bílarnir aðeins fáanlegir í svokallaðri 6:2=2 útgáfu (8 hjóla) en 6:4 (10 hjóla) trukkurinn verður til afhendingar frá upphafi árs 2026.

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku sagði við þetta tækifæri:
„Hér er um að ræða eitt stærsta einstaka orkuskiptaverkefnið í sögu þjóðarinnar. Eldsneytisnotkun 20 dráttarbíla jafnast á við ríflega þúsund fólksbíla og áætla má árlegan sparnað af bruna 700 þúsund lítra af dísilolíu. Með innflutningi bílanna og kaupum á þeim er stórt skref stigið í átt að orkuskiptum í þungaflutningum á Íslandi. Næstu skref eru að tryggja bæði framboð og samkeppnishæft verð á vetni til nota í samgöngum þannig að full orkuskipti geti átt sér stað.“

Fréttatilkynningin í heild sinni: