Franska orkufyrirtækið Qair hefur keypt af Orkunni helmingshlut í Íslenska vetnisfélaginu og er ætlunin að fjölga vetnisstöðvum félagsins úr tveimur í sex samkvæmt fréttum mbl.is og Viðskiptablaðsins. Verður þá hægt að fylla á vetnisbíla hringinn í kringum landið en Íslenska vetnisfélagið hefur rekið eina vetnisstöð við Grjótháls í Reykjavík og aðra á Fitjum í Reykjanesbæ síðan 2018.
Stöðvarnar eru hluti af Hydrogen Mobility Europe verkefninu sem Íslensk Nýorka er aðili að. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Fuel Cells and Hydrogen 2 Joint Undertaking (nú Clean Hydrogen Partnership) samkvæmt styrksamningi nr. 671438 og nr. 700350. Verkefnið fær stuðning frá Horizon 2020 rannsóknar- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Hydrogen Europe og Hydrogen Europe Research.