Skip to main content

Íslensk nýorka, Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa standa fyrir sameiginlegum viðburði þann 29. ágúst n.k. kl. 13:00.

Viðburðurinn verður í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og ber yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markar upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.

Áhugasamir geta skráð sig á viðburðinn og valið um að mæta í eigin persónu eða sitja fundinn í streymi (Teams).

Boðið verður upp á hressingu eftir fundinn.

Skráning fer fram hér. Öll velkomin!