Skip to main content

Íslensk Nýorka hefur skilað skýrslu úr netkönnun á stöðu hleðslustöðva fyrir rafbíla og notkun þeirra á meðal rafbílaeigenda. Verkefnið var unnið fyrir ráðuneyti umhverfis-, orku og loftslags og voru niðurstöður kynntar á viðburði Grænu orkunnar í desember.

Markmið könnunarinnar var að greina hvort flöskuhálsar séu til staðar í hleðslukerfi landsins og hvar. Könnunin gaf meðal annars vísbendingar um

  • að notendur merktu breytingu á aðgengi til hins betra frá fyrra ári
  • að fleiri nýti sér almennar hleðslustöðvar einungis til að komast á leiðarenda
  • að fjölga þurfi hleðslustöðvum á hverjum stað, fremur en að fjölga staðsetningum stöðva
  • að enn skorti hraðhleðslustöðvar á Norðausturlandi, Suðausturlandi og Vestfjörðum
  • ákall eftir viðurlögum við því að teppa hleðslustöð
  • að ekki sé tímabært að hið opinbera hætti fjárveitingum til uppbyggingar hleðsluinnviða fyrir rafbíla

Skýrsluna með nálgast hér.