Skip to main content

Fyrsti verkefnisfundur í RECET verkefninu (Rural Europe for the Clean Energy Transition), var haldinn í Postojna í Slóveníu, 7. – 8. nóvember. Verkefnið er til þriggja ára og styrkt af LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Fyrri daginn fór hópurinn yfir helstu áherslur fyrir verkefnið og stilltu saman strengi. Seinni daginn leiddu fulltrúar Energiakademiet frá eyjunni Samsø í Danmörku hópinn saman í þjálfun um leiðir til að virkja fólk til þátttöku í vinnu um orku- og loftslagsmarkmið og við smíði loftslagsáætlana á svæðum þátttakenda.

Aðilar að verkefninu eru alls níu fyrirtæki/stofnanir, frá fimm Evrópulöndum. Frá Íslandi eru það Íslensk NýOrka og Eimur ásamt Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra – SSNE og Vestfjarðastofa, frá Danmörku Samsø Energiakademi, frá Slóveníu byggðaþróunarskrifstofan Zavod Iskriva, og sveitarfélagið Občina Postojna, frá Spáni eyjaráðið Consell Insular de Menorca, og frá Svíþjóð Energikontor Syd.

Þetta voru frábærir dagar og við erum spennt fyrir framhaldinu!